Færsluflokkur: Skapandi starf
Byggingaleikir
31.3.2012 | 16:16
Til er alveg frábær sænsk bók um byggingarleiki í leikskólum (Bygg og konstruktion i förskolan). Bókin er eftir leikskólakennara, hana Miu Mylesand sem starfar á Trollet í Kalmar. Mia kom hingað fyrir nokkrum árum og hélt erindi um efnið á vegum Háskólans á Akureyri. Bókin fjallar að hluta um það þegar gamli leikskóli barnanna Trollet í Kalmar var rifinn og nýr byggður. Hvernig samstarfið börnin áttu við arkitekta og verktaka. En...
Byggingarleikir
... mest fjallar bókin um byggingaleiki og byggingasvæði í Trollet. Mikið er lagt upp úr fjölbreyttum efnivið. þar er ekki sama hreinstefnan í gangi og finna má í mörgum íslenskum leikskólum. Í bókinni er sagt frá því þegar þau ákváðu að færa bæði bíla og dúkkuhúsadót inn á byggingarsvæðið og í leiðinni útvíkka hugmyndir sínar um hvað er byggingarefni. Síðan er fjallað um hvaða áhrif það hafði á leik barnanna. Í bókinni veltir Mia töluvert fyrir sér kynjuðum leik barna, hvað og hvernig hægt er að hafa áhrif á hann. Ég hef komið í Trollet bæði gamla og nýja, einn daginn sem ég var þar skruppu leikskólakennararnir frá, voru í efnisöflunarferð, fannst vanta meiri fjölbreytileika í efniviðinn sem börnin á yngstu deildunum hafa. Þar er nefnilega ekki hræðsla við að efnið geti verið of mikið.
Jafnréttismál
Rætur jafnréttisumræðunnar rekur Mia til 1993 þegar eitt foreldrið fór að velta fyrir sér og spyrja um hvort að starfsfólk ynni öðruvísi með stelpum en strákum. Foreldrið vildi fá að vita hvort að stelpur og strákar léku sérstaklega með einhvern efnivið og hvort þemum væri skipulögð þannig að meira tillit væri tekið til annars kynsins. Er t.d. frekar unnið með þemu sem höfða til stráka en stelpna? Verða kóngulær frekar fyrir valinu en vatnaliljur?
Þessar vagnaveltur leiddu til þess að þau ákváðu að skoða málið og komust að því að strákarnir voru ráðandi við ákveðnar aðstæður. Þau veltu fyrir sér hvernig hægt væri að mæta þessu og ákváðu að börnin skiptust eftir kyni við matarborðin og ákveðna daga væru börnin í kynjaskiptum hópum.
Hugmyndafræðin var að leyfa stelpunum og strákum að takast á við verkefni á eigin forsendum, en ekki forsendum hins kynsins. En þrátt fyrir að stelpunum var t.d. skapaður tími og vettvangur til að byggja, höfðu þær engan sérstakan áhuga. Með tímanum náðu þær þó einhverri færni en byggðu samt aðallega einar til að byrja með. Mia segir að þetta hafi leitt til þess að leikskólakennararnir "normalíseruðu" allar stelpur og ákváðu þeim tiltekna eiginleika út frá kyni, og sama hafi átt við um strákana. En þetta sá hún ekki fyrr en hún leit í baksýnisspegilinn, en segir jafnframt að það jákvæða við þessa tilraun hafi verið að hún/þau fóru að gera sér grein fyrir áhrifum þess hlutverks sem starfsfólkið valdi sér á barnahópinn.
Uppeldisfræðileg skráning opnaði augu
Mia segir að það hafi verið með uppeldisfræðilegri skráningu sem hún hafi uppgötvað eigin fordóma og staðalmyndir, og skráningin hafi hjálpað þeim að taka næstu skref. Sjálf hafi hún t.d. trúað því að strákar byggðu mannvirki s.s. vegi og hús á meðan stelpurnar vildu byggja í kring um dýrin og dúkkudótið (staði þar sem félagsleg samskipti - tengsl ættu sér stað). "Þegar ég sá að stelpurnar vildu gjarnan byggja með falllegum litríkum kubbum og hafa ríkt efnisval opnuðust augu mín". Uppeldisfræðilega skráningin breytti sýn hennar og hún segist skynja að öll börn byggja ólíkt eins og þau skynja veröldina í kring um sig á mismunandi hátt. Mia segir að það sem þau hafi sem sé uppgötvað að því ríkari sem efniviðurinn er því meiri möguleika bíður hann upp á, í leik og sköpun. Möguleika til að endurskapa veröldina og þá reynslu sem börnin búa yfir. Þannig hafi bæði leikurinn og meðferð barnanna á efniviðnum þróast.
Upp úr hjólförum kynhlutverka
14 árum eftir samræðu Miu við foreldrana og tilraunir í leikskólanum segist Mia ekki sjá mun á því hvernig kynin leika á byggingarsvæðinu. Ef börn frá unga aldri eru með leikskólakennara sem leggja áherslu á byggingarleiki, að bæði stúlkur og drengir byggi, þá verða bæði kynin byggingameistarar segir Mia. Að kynjaskipta börnunum var fyrir þau fyrsta skrefið upp úr hjólförunum, í gegn um uppeldisfræðilega skráningu fundu þau út að ákveðinn efniviður hugnaðist stelpum betur. Þau gerðu sér grein fyrir að ef byggingarsvæðið átti að verða fundarstaður beggja kynja og allra barna, yrði efnið þar að höfða til allra barna.
Hugmyndin er ekki að börn eigi að byggja vegna þess að það er hollt og gott, heldur vegna þess að byggingarsvæðið er svæði þar sem nám á sér stað, þar sem börn fá tækifæri og næði til að þróa færni og hugmyndir. Þess vegna krefst byggingarsvæðið líka mismunandi efniviðar. En á Trollet trúir fólk því líka að byggingarleikir og hlutverka- og þykjustuleikir eigi heima hlið við hlið, að á milli þeirra sé brú sem börnin eru sífellt að krossa. Vegna þessa sjónarmiðs á margt núna heima á byggingarsvæðinu sem áður átti heima á tilteknum stöðum eða hornum í leikskólanum .
Hvað styður byggingaleiki?
Fólkið á Trollet hefur verið upptekið af því að pæla í hvað styður við byggingaleikinn, hvernig efnivið þarf til að byggja rosa hátt, hvaða efnivið þarf til að skapa undirstöður og jafnvægi, hvaða efniviður lokkar stúlkur og drengi að byggingarsvæðinu. Þau hafa verið upptekin við að skoða hvernig börn smita hvert annað af byggingaráhuga, hvernig hægt sé að styðja við þá hugmynd á meðal barnanna að það sé jafn mikilvægt fyrir stráka og stelpur að byggja "fallegar" byggingar.
Bókin er annars hafsjór hugmynda og pælinga um byggingarleiki og hvet ég flesta leikskólakennara til að verða sér út um hana.
Skapandi starf | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tengsl leikskólastarfs og lista
29.3.2012 | 21:26
Ítalski listamaðurinn Bruno Munari (1907 -1998) taldist til annarar kynslóðar framtíðarlistamanna á meðal samtíðarmanna, aðrir sáu í honum sterk tengsl við hugmyndafræði súrrealista. Hann var gjarnan kallaður Enfante terrible sinnar kynslóðar. Sá óþægi sem ekki fellur að rammanum, sá sem með list sinni að skilgreinir sig að hluta utan rammans. Hjá honum voru mörk listgreina að ýmsu leyti ósýnilegri en hjá flestum samtímamönnum. Fjöldi tilrauna hans í listum fanga athygli nútímafólks og sum samsömum við eigin reynslu og sýn á veruleikann. Munari beitti nýrri þekkingu og tækni óspart í verkum sínum. Rannsóknareðli listarinnar var honum hugleikið. Hann leitaðist við að skapa listaverk sem voru í gagnvirku sambandi við umhverfið, verkið hefðu áhrif á umhverfið en umhverfið samtímis áhrif á verkið. Óróar heilluðu Munari eins og Calder en hann hafnaði alfarið að hans óróar væru í ætt við óróa Calders. Undirliggjandi lögmál og efnistök væru gjörólík.
Rannsóknir Munari snéru m.a. að möguleikum ljósins og að ljósfræði. Samspil ljós, lita og hreyfingar er algengt viðfangsefni í verkum hans. Pensill hans, ljósið, tæknin og samspilið þar á milli. Það er skrýtið að upplifa sum verka hans frá því um í kringum 1950 og sjá þar pælingar ýmissa nútímalistamanna. Verk t.d. Egils Sæbjörnssonar eiga að margt sammerkt með hugmyndaheimi Munari, sjálf minnist ég sýningar hans í Gallerý I8 fyrir nokkrum árum. Á heimasíðu sem tileinkuð er list Munari er Ólafur Elíasson talinn sá nútímalistamaður sem stendur honum næst í pælingum um eðli lita og ljóss. Rannsóknir Munari á pólariseruðiu ljósi minna frekar á tilraunir í eðlisfræðitíma en myndlist. En slíkt verk sýndi hann einmitt á Feneyjartvíæringnum 1966. Glerhjúpur Hörpu minnir á ljósatilraunir Munaris á Feneyjartvíræringnum 1966. Leikur ljóss og lita byggist á sömu lögmálum.
Munari voru börn og list fyrir börn hugleikinn. Hann hannaði m.a. bókverk sem höfðuðu sterklega til barna. En líka ýmsa nytjamuni. Þess má geta að hann fékk verðlaun LEGO 1986 fyrir framlag sitt til að styrkja hugmyndina um skapandi þætti bernskunnar. Veturinn 1975-76 sótti ég unglinganámskeið í myndlist í MHÍ, þar kenndi á þeim tíma Jón Reykdal. Meðal verka sem hann bauð okkur að gera var hvert okkar fékk ramma úr slidesmyndavél. Við áttum síðan að safna úr umhverfinu efni/hlutum sem við vildum stækka upp á vegg og mála. Í dag sjáum við slík verk sem byggja á skammtafræði. Ef farið er á Vísindavef HÍ er t.d. reiknað með að ummál strandlengju Íslands sé um 1500 kílómetrar. En samtímis er gerð grein fyrir að það sé aldeilis ónákvæmt og byggi á því að mæla á tiltekinn hátt. Ef t.d. farið væri með málbandið inn í hverja vík um hvern stein og klett má reikna með að talan væri töluvert mikið hærri. Svona eins og þegar jólasería er tekin saman sikk sakk áður en henni er pakkað. Ummál hennar virkar töluvert minna þannig en þegar búið er að taka hana í sundur. Á sömu hugmyndafræði voru verkefni Jóns með okkur krökkunum byggð. Að við skynjuðum stórleika og hins smáa. Sandverk barna á öðru ári í leikskólanum Aðalþingi hér að neðan byggir á sömu hugsun, að hið smáa geti verið ógnarstórt.
Í leikskólanum Aðalþingi er greinileg hugmyndafræðileg tenging við list og hugmyndir Munari. Í ljósaveri leikskólans er m.a. leikið með möguleika ljóssins og litanna á margvíslegan hátt. Að skapa með ljósi, að breyta rými með ljósi er hluti af því sem þar er gert. Stundum í umhverfi sem hvetur til rannsókna á tengslum ljós og hluta. Hér að neðan gefur að líta dæmi annarsvegar um skuggaleikhús og svo leik barna með eigin skuggamynd.
Börn rannsaka ljós á mismunandi veru, stundum verður til sjálfsprottinn leikur í tengslum við teiknarann snjalla, sólargeislann. Ef börn umgangast ljós og skugga af opnum hug, eru þau líklegri til að taka eftir tækifærum náttúrunnar í daglegum önnum. Börnin á myndinni eru að athuga hvernig þau geta túlkað tilfinningar með skugga.
Að lokum Munari bar mikla virðingu fyrir börnum sem endurspeglaðist í list hans. Hann trúði því að hver manneskja bæri í sér hæfileika til að útbúa rými og hluti sem kölluðust á við fagurfræðina, ef hún hefði aðgang að tækni og leiðbeiningu. Dæmin hér að ofan eru vonandi vísbending um að það sé réttmæt ályktun. (KD 13. maí 2011)
Greinin hér að ofan birtist fyrst á gamla blogginu mínu www.roggur.blog.is og heimasíðu þess leikskóla sem ég þekki best þessa daga, leikskólann Aðalþing í Kópavogi.
Skapandi starf | Breytt 30.3.2012 kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)